Stundum er betra að þegja og láta menn halda að maður sé heimskur, en tala og draga af allan efa!
08.02.2006 23:20:13 / Elsie

blogg

Jæja ég held að það sé koin tími á eitt blogg, freekar langt síðan síðast.
Það er nú afar mikið sem hefur á daga mína drifið og því nenni ég nú ekki að skrifa það hér.

Silvía Nótt í Eurovision, tremma flott gella. You go girl.

En yfir úr einu í annað, þá er ég bara búin að vera lasin, líka nóg að gera í fótboltanum, keppa eins og moðerfokker, og svo er skólinn alltaf nóg að gera, erum að lesa Gísla sögu Súrsonar, takmark kennara að kála nemendum sínum sem fyrst, þá eru þeir lausir við okkur.

Helgin verður bara róleg, vinna og keppa og eitthvað, bara gaman.

Eeen ég nenni þessu engan veginn lengur.

Hey jú, það var eitthver svo elskuegur að semja ljóð handa mér hérna, set það  hér fyrir neðan.

ó elsie mín ó elsie mín
þú ert snillingur
ó elsie mín ó elsie mín
ekki villingur
ó elsie mín ó elsie mín
viltu vera þæg
ó elsie mín ó elsie mín
sýndu smá vægð
ó elsie mín ó elsie mín
ekki vera vond
ó elsie mín ó elsie mín
heldur þæg og góð

Þar hafiði það.

Svo vil ég einni koma því að framfæri að Fanney Svansdottir er mesta gestabóka og skoðana frík sem um getur, tremma fyndin stelpa, og skrýtin, eða hvað?

jæja troðiði þessu í andlitið á ykkur.

takk fyrir


» 29 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 19:41:43 / Elsie

hinn fullkomni

Efitr langa leit ef ég fundið hinn fullkomna!


Aidan í Sex and the City!

» 64 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 22:13:23 / Elsie

jólin,jólin

Kommentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!


» 39 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 12:31:27 / Elsie

klukk

Jæja ég var víst klukkuð, meiri vitleysan :P 

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1.  Eiga flottan bíl
2.  Eignast krakka
3.  Eiga sumarhús á Spáni
4.  Getað bakað
5.  Eignast góðan mann
6.  Læra samkvæmisdansa
7.  Láta e-h rætast úr mer


7 hlutir sem ég get gert:

1. Spilað fótbolta 
2.  Hlegið :D
3.  Talað.. :D
4. Hlustað a víni mína
5.  Draslað til
6.  Verið með fullkomnunaráráttu
7. Verið smámunasöm

7 hlutir sem ég get ekki gert:

1. Stillt skapið í mér
2. Verið stundvís
3. Farið í handahlaup, það bara er ekki hægt!
4. Sett tunguna uppá nef
5. Gert tvent í einu
6. Teikna!
7. . Keyrt bíl! :(

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið

1.Persónuleikinn
2. Augun
3. Brosið
4. Húmor
5. Lyktin
6. Útlitið, þ.e.a.s snyrtilegur og þess háttar
7. Rassinn ;)

7 frægir karlmenn sem heilla mig

1. Brad Pitt
2. Jonny Depp
3. Enrique Iglesias 
4. Björn Jörundur
5.  Christian Ronaldo
6. ........
7. ..........

7 orð sem ég segi oftast

1. Í alvuru
2. Jee
3. Skítadolla
4.Drulludós
5. Okee
6. Bölvaða
7. Helvítis

7 manneskjur sem ég ætla að kitla
Ég ætla að vera ótrúlega góð og klukka engann nema Fanney hehe :D



» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 11:03:52 / Elsie

jáhá

Núverandi... :)

núverandi föt: Diesel buxur og flísarinn

núverandi tími: 10:52

núverandi skap: gæti ekki verið betra

núverandi hár: teygja 

núverandi pirringur: afskiptasamt fólk

núverandi lykt: Amor

núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: sofa?

núverandi skartgripir: Hálsmen

núverandi bók: Da Vinci lykilinn

núverandi áhyggja: Galaballið :S

núverandi uppáhalds leikari: Julia Roberts

núverandi íþrótt: fótboltinn að sjálfsögðu 0

núverandi löngun: Fara aftur til Spánar með Fanney minni, gaaaaaman!

núverandi tónlist: Hungry like the wolf- Duran Duran

núverandi ósk: Plóma

núverandi texti á heilanum: Ég er undir þínum áhrifum i dag, aðeins betra lag! :)

núverandi farði: púður og maskari

núverandi undirföt:enginn? :O 

núverandi eftirsjá: Held það sé best að halda því fyrir mig bara :)

núverandi desktop pic: Eitthver Bangsímon held ég

núverandi áætlanur fyrir kvöld/helgi: Allavega fótbolta æfing, og svo er bara vinnuhelgi hjá mér

núverandi blótyrði: Djöfulsins fokk

núverandi vonbrigði: Að hafa ekki byssuleyfi:$

núverandi skemmtun:  Singstar Pop jee 8)

núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við: Berglind :)

núverandi manneskja sem ég forðast: Hún veit það best sjálf er þaggi ;)

núverandi uppáhalds þáttur: Heyrðu það er O.C

Heyrðu svo fann ég voooða sniðugt próf hérna.
Hversu góður ertu í rúminu, vilja ekki allir vita það hehe ;)
Klikkaðu hér
 ;) mikið gaman mikið fjör

Elsie :)


» 25 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 00:55:57 / Elsie

Are you really complaining?

Jæja þetta verður eflaust mitt dýpsta blogg hingað til.

En jæja þannig er mál með vexti að ég var í ensku tíma í dag, hjá Hönnu Láru, sem er ein mesta baráttu kona sem ég veit um, bara kúl kelling sko, og við vorum að læra um Unicef, þar að segja samtök sem berjast fyrir réttindum barna um allan heim. Við tókum svona próf, og þetta fékk mig virkilega til að hugsa hversu gott við höfum það.

Ætla að henda þessu prófi inn, getið svarað bara fyrir ykkur og séð útkomuna.

1.You're thirsty, what do you do?

-Turn on the tab or find something in the fridge
-Go out to the well and pump water
-Walk a few miles to get water from the open well in the village
-There is no water, I will die of thirst

2. You're feeling hungry, what do you do?

-Go to the fridge or cuppboard and find something
-Wait till nest time I am given a food by my parents
-Try to beg, steal or borrow
-There is no food, I'll starve to death

3. You feel ill, what do you do?

-See a doctor immediately
-Walk a few miles to see the next health centre, but I have to wait a while
-Hope that the red cross will drive by or I can get to the next emergency tent
-There isnobody to help me, I have to care of myself or die.

4.You want to have an education, what fo you do?

-Go to shcool for 10 years without any cost. It's a mandatory
-I can get an education from the missionary station in my village if I want to
-I can get an education for an hour a day at the factory where I work
-There is no education, I cannot even read this

5. You need to pay the ammount of 2000 kronur, what do you do?

-I got the money or I can have it from my parents
-I need to borrow it and pay it when I get money next time(in a month)
-I will have to save yp for a year - or sell some of my belongings
-I will never get that much money in my life

Remember: MILLIONS OF CHILDREN  all around the world, would tick the last possibility. What did YOU select?

Ég ætla rétt að vona að þetta vekji fólk til umhugsunar um það, hversu virkilega gott við höfum það, og hversu lánsöm við erum, að geta t.d bara labbað inní eldhús kveikt á krananum og fengið okkur vatn, opnað ísskápinn og fengið okkur að borða, því mörg börn í heiminum fá aldrei kynnast þeim lífsgæðum sem við höfum. 
Í sumum löndum ertu orðin sjálfráða 12 ára og þá eru mamma og pabbi ekki skyldug lengur til að fæða þig og klæða á meðan á Íslandi erum við undir verndarvæng foreldra til 18 ára aldurs flest öll.
Í Mexíkó t.d lifa sum börn bara á ruslahaugunum og borða það sem annað fólk hendir, og þegar mennirnir koma og eru að þjappa ruslinu þarf bara hver að hugsa um sig og að koma sér í burtu, því annars ertu bara krossfestur, dáin og grafin.
Barnaþrælkun tíðkast líka, og ekki er hún af minni endanum.
T.d Nike og Adidas, það eru í mörgum tilfellum lítil börn sem sitja og sauma þarna daginn út og daginn inn til að eiga fyrir mat handa sér og fjölskyldu sinni, Selcet boltarnir, þeir eru einnnig saumaðir af litlum börnum.
Og í Afríku t.d eru lítil börn send í herinn, úti opin dauðan og láta kannski lífið, á meðan sitjum við heima og horfum á sjónvarpið og klórum okkur i rassinum. 
Mér finnst þetta sorgarástand, en það þarf nefnilega ekki mikið til að hjálpa, við getum "ættleitt" barn og borgað með því þúsund kall á mánuði og með þessum þúsundkalli öðlast barnið menntun og fær að borða og drekka og fær föt, og þetta er alls ekki svo dýrt, hugsiði hvað þið væruð að gera mikið kraftaverk með 1000 kalli á mánuði. Einnig er hægt að gefa föt í rauða krossinn sem koma að góðum notum.
Það er alls ekki það mikið sem það þarf til að hjálpa til.
Þetta er kannski ótrúlegt, en svona er þetta nú samt. Mér finnst fólk almennt séð alls ekki nógu meðvitað um þetta ástand, sem og mörg önnur.
En allavega þetta fékk mig til að hugsa og gera mér grein fyrir hvað ég er ótrúlega heppin, og ég ætla að vona að þetta hafi sömu áhrif á aðra.


 

Skelfilegt að sjá þetta, hvað ætli þetta litla barn sem búið að lífláta marga?
Sorlegt :(

Þá er þetta komið gott held ég

Elsie kelling ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 00:23:01 / Elsie

...

 

 

If I could have just one wish,
I would wish to wake up everyday
to the sound of your breath on my neck,
the warmth of your lips on my cheek,
the touch of your fingers on my skin,
and the feel of your heart beating with mine...
Knowing that I could never find that feeling
with anyone other than you.

Væri þá ekki lífið yndislegt!


» 14 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 12:47:13 / Elsie

:)

Jæja það hlaut að koma að því að ég yrði veik, og bloggaði híhí :)
Sit hérna veik heima með leiðindarflensu eitthverja og hef svoleiðis ekkert að gera!
Þannig ég ákvað að fara á stúfanna og stela nokkrum myndum sem þið getið fundið undir "Nýjar myndir". :)

Jæjja löng helgi framundan og spurning hvað maður ætti að gera af sér þá :)
Ætla allavega ekki að vera veik, það eitt er víst.

Kannski að maður skelli sér bara til Herdísrt langt siðan maður hefur séð hana stelpuna, held að þé ráðlegt, og Kobba litla ekki má nú gleyma honum :)

Farin að sakna þeirra aðeins smá.

Haha mátti til með að henda þessu hérna inn, ég og Herdis á góðri stundu í fyrra eða hittí fyrra, en þess má geta að þarna átum við of geist hehe :)
Góðir tímar :)

Elsie


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 00:14:04 / Elsie

Hollráð!

Stelpur vissuð þið að...

..kossar eru hollir!


..bananar eru góðir við túrverkjum!


..Það er gott að gráta!


..kjúklingasúpa lætur ykkur í alvöru líða betur!


..94% af strákum myndu elska það að fá blóm frá ykkur!


..Lygar eru í alvöru óhollar!

..það er nóg að láta maskara efst á augnhárin!

..það er í alvöru satt að strákar móðgi ykkur þegar þeir eru hrifnir af ykkur


..það er alls ekki hægt að láta á sig maskara með munninn lokaðan!


..89% stráka vilja að ÞÚ takir fyrsta skrefið


..Súkkulaði lætur ykkur líða betur!


..Strákum finnst sætt þegar þið mismælið ykkur!


..Góður felari felur alveg bólur þó þú haldir annað!

..Strákar eru ekki tára ykkar virði! :)

Svoleiðis er það nú!


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 15:20:55 / Elsie

núverandi

Skilst á öllu að þetta sé nýjasta trendið í dag, svo af hverju ekki :P

núverandi föt: Killah peysa og Levi's buxur 

núverandi tími: 15:14

núverandi skap: skidegodt! 

núverandi hár: tagl og spenna eitthvað 

núverandi pirringur: hvað ég á enginn föt! 

núverandi lykt: sumarilmurinn frá jean paul gauliter

núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: læra?

núverandi skartgripir: hálsmen sem ég fékk í jólagjöf og Alonso bandið

núverandi bók: Englar Alheimsins

núverandi áhyggja: ná ekki stærðfræði samræmdaprófinu:S

núverandi uppáhalds leikari: ég baaaara veit það ekki

núverandi íþrótt: fótboltinn að sjálfsögðu :)

núverandi löngun: nýjan fataskáp :D hoho 

núverandi tónlist: þabarra ekkert á fóninum eins og stendur

núverandi ósk: að vera búin með þennan blessaða 10.unda bekk

núverandi texti á heilanum: Þú bara ert, eða e-h 8-) veit ekker thvað hann heitir :P

núverandi farði: púður og maskari

núverandi undirföt: wraww.. ? 

núverandi eftirsjá: Hmm...  

núverandi desktop pic: grænt engi 8)

núverandi áætlanur fyrir kvöld/helgi: ætli maður kíkji e-h út í kvöld og svo bara afmæli og eitthvað skemmtilegt um helgina :)

núverandi blótyrði: bölvaða djöfulsins helvíti andskotans, alltí einni bunu 

núverandi vonbrigði: hmm?

núverandi skemmtun:  Msn-ið góða :P

núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við: Kristey og Haffi 

núverandi manneskja sem ég forðast: haha who knowes :klikk:

núverandi uppáhalds þáttur: horfi sama og ekkertá sjónvarpið:S

oboolega lekker blogg, verði ykkur að því :P


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 15:02:19 / Elsie

pie?

Var að fara aðeins yfir það sem er á þessari síðu og þá sérstaklega myndinar, haha smá gamlar :D
Allir þvílíkt breyttir núna síðan þá, þarf að fara að gera e-h í þessu, setja nýjar myndir og læti.Þyrfti kannski fyrst að fá mér myndavel8| Bætti samt eitthverju dralsi þarna við, fótbolta dótaríi og e-h.
Dettur nú samt eitthvað voða takmarkað í hug að setja á þessa síðu.

Það er alltaf brjalað að gera svo maður hefur aldrei tíma til að blogga.
Helgin var fiiine :D Partý hjá Viðari á föstudagskvöldið, og svo kíktum við e-h´aðeins á rúntinn á laugardaginn.

Nenniggi meir veriði sæl


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2005 08:04:52 / Elsie

kluuuukk?

Ég hef víst verið klukkuð, svo ég á víst að koma með 5 ómerkilegar staðreyndir um mig.

- Ég er dökkhærð

- Ég er lefter

- Ég er forfalinn msn sjúklingur, ætli sé hægt að fá e-h við þessu?:$

- Reiknivélin mín er biluð

- Ooooog ég nenni ekki að blogga

Þá erþað komið að mér að klukka :klikk:

Og ég ætla að klukka:

Herdísi(http://blog.central.is/hebba_plebba)

Jónóla(http://blog.central.is/beybilov)

Guný(http://blog.central.is/guny)

Steinu(http://blog.central.is/steinadilja)

Jamm þá held ég að þetta sé barasta komið :P

-Elsie out!


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.09.2005 23:18:40 / Elsie

obbosí

Jæja ég ákvað að taka til höndinn og blogga smá.
Eins og er ég stödd í Garðabænum hjá frændfólki mínu sem ég var að hitta í fyrsta skiptið, verð hjá þeim yfir alla helgina.
Rosalega yndisleg, vilja allt fyrir mann gera, gæti ekki verið betra :)

Á morgun er það svo úrtaksæfing hjá U17 og maaaaan mér kvíðir fyrir :( þótt þetta sé nú kannski ekkert að kvíða, þaaá er þetta soltið mikið fyrir mitt litla hjarta og sjálfstraust, það er bara að krossa fingur og vona það besta. Typískt ég að gera eitthvern bölvaðan skandal og allt fer til fjandans :S
Eeen það er bara að vona það besta.

Annars er nú eitthvað ósköp lítið að frétta, þessi að síða að gefa upp öndina held ég :S ég er allavega ekki alveg að nenna þessu og ekki að standa mig heldur.

Allt brjálað að gera í skólanum, mætti halda að kennarnir haldi að maður hafi ekkert annað að gera, shiii heimalærdómurinn sko, tók með mér bækurnar hingað til að læra yfir helgina því það er ekkert lítið sem var sett fyrir.
Annars er alveg ágætt í skólanum, frekar tómlegt samt að hafa enga krakka í árgangum fyrir ofan okkur.

Annars líst mér ekkert á þetta karlaleysi okkar Fanneyjar, verðum að fara að gera e-h í þessu, er þaggi ;)
Ekki gott það neineinei.

Þarf að fara að betrumbæta þessa síðu eitthvað, rosalega tóm eitthvað :S dettur samt ekkert í hug hmmm?:$
Eitthverjar hugmyndir :P

Jæja læt þetta gott er þaggi ;)

Adios Elsie :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 01:30:57 / Elsie

jájá

Ahhaha ákvað að skella inn eilitlu bloggi þar sem ég hef ekki margt annað að gera. Búin að pakka endanlega sem betur fer, enda tveir og hálfur tími til brottfarar héðan frá Selfossi.
Við okkur tekur þá eins og hálfs tíma akstur í Keflavíkina og þaðan liggur leið okkar niðrá flugvöll, er samt ekki að ná því að ég sé að fara út. Voða róleg yfir þessu öllu saman eitthvað.

Kóngafæði líka sem maður fær í flugvélinni alveg hreint, eflaust verður það ommeletta, sem er ekki manni sæmandi.

Svo verður bara makað á sig sólvarvörnum hægri vinstri því ekki viljum við, ísfólkið brenna þarna í sólinni.

Kannski maður ætti að leggja sig í þennan stutta tíma, skárra en ekki neitt.
Svoo, Barbados hér kem ég!

-Elsie utanlandsfari!:D

Ahh svona verðum við Fanney á morgun, gjörsamlega að baka okkur útí gegn:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.08.2005 21:59:49 / Elsie

Froða? ha? við? nei? útí garði? nei? um nótt? HVAÐ?

Jæja, ég er ekki frá því að ég hafi skemmt mér helmingi betur um helgina en margir sem fóru í Galtalæk eða woddever:D
Er samt ekki alveg viss hvort ég ætti að þora að skrifa það sökum þess að eiga það á hættu að vera lögð inná hæli, svosem ekkert að því, því ég færi ekki ein, hún Fanney kæmi með mér :klikk:

Til að slík skemmtun geti átt sér stað, þarf að hafa þessar hluti meðferðis:

*Wella hárfroðu, 3 brúsa ef ekki fleiri sveimér þá
*Nóóóóóg af fötum
*Kók
*Kött sem elskar mann
*Handklæði
*Góóóða sturtu

Meira segi ég ekki  :)

Ég er nokkuð sjúr á því að það sé ekki mikið meira sem þarf að hafa, auðvitað sjúkleikan og hvaðeina.
Þetta líka ágætis kvöld byrjaði þannig að við Fanney fórum í bæinn með pabba og vorum bara að lulla e-h í bænum á meðan pabbi var í bíó-i.

Svo fórum við bara heim, vorum mikið að spá í að kíkja eithvert, en einfaldlega höfðum ekki far, auk þess var vinna daginn eftir.
Svo komum við bara heim, tókum okkur froðúbrúsa í hönd og say no more :D hehe, þessum froðubrúsa fylgdu nokkur öskur, hlaup og geðtruflaðar hótanir.
I kjölfarið fylgdi svo ferð heim til Fanney til að ná í meiri froðu og meiri geðbilaðar hótanir og öskur og hlaup og stríðsóp og ég veit ekki hvað og hvað, en allt átti þetta sér nú samt stað útí garði, um hánótt. Vorum þarna úti á náttfötunum hlaupandi um í garðinum mínum og sprauta froðu yfir hvor aðra.
Já svo var mál með vexti að við fórum nefnilega í hárfroðuslag beibí! Þetta var rosalegt, soldið dýrt reyndar en samt sem áður rosalegt.
Jæja þar hafiði það. Stuð á okkur semsagt.
Við ákváðum að gera bara e-h rosalegt næstu verlsunarmannahelgi, Akureyri er málið held ég.

Jæja, var að vinna í dag frá 12:00-20:30, á þjóðhátíðarkaupi, ekki er það nú amalegt verð ég að segja.
Er auk þess búin að vera að vinna yfirvinnu alla helgina svooo :P

Jájá 37 dagar í Benirdorm, 37 sjö dagar í að Elsie verði brún, eða kannski brennd öllu heldur, jæja það kemur þá bara í ljós.

Er a spá í að fara að þvo af mér Nóatúns slepjuna.

Howdy!

Elsie út :P


» 71 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7